- …
- …
Áramótaheit sem gerir þér, dýrunum og jörðinni gott
Í janúar á hverju ári máta hundruðir þúsunda einstaklinga um allan heim sig við vegan lífstílinn, sem felst í því að forðast - eftir fremsta megni - hagnýtingu dýra og ofbeldi gagnvart þeim. Veganúar á Íslandi er í samstarfi við Veganuary.com.
Dýraafurðir eins og rautt kjöt og mjólkurafurðir hafa mikil áhrif á losun gróðurhúsalofttegunda en með því að hætta að neyta þeirra dregur þú verulega úr þínu kolefnisspori.
Með vegan lífsstíl getur þú forðað hundruð dýra frá þjáningu á ári hverju. Þú bjargar lífum með hverri máltíð og vöru sem þú neytir án dýraafurða.
Sýnt hefur verið fram á að dýraafurðir, eins og td. unnar kjöt- og mjólkurvörur auka líkur á krabbameini og geta haft neikvæð áhrif á heilsuna. Á grænmetis- og plöntufæði getur heilsu þinni stórbatnað.
Styrktaraðilar
Veganúar 2024Umfjöllun í fjölmiðlum
Hér höfum við tekið saman umfjöllun um Veganúar í fjölmiðlum
Samfélagsmál á RÚV
Aldís Amah Hamilton ræddi um Veganúar og hugmyndafræði veganisma í viðtali við RÚV.
MiðVeganúar í Grænkerinu
Birta Ísey og Axel Friðriks úr stjórn Samtaka Grænkera fóru yfir hvað er búið að gerast í mánuðinum og ræddu hvað koma skal.
Ósk Gunnars á FM957
Ósk fékk Axel Friðriks til sín og hann sagði frá Veganúar á mannamáli, það er engin pressa að vera fullkominn og við eigum öll okkar vegferð.
Fréttavaktin á Hringbraut
Valgerður og Axel Friðriks litu við hjá Margrét Erlu Maack og töluðu um að sýna sér mildi, byrja hægt og góðan mat. Hefst á 23:37.
Innlent á Vísir.is
Sunna Sæmundsdóttir ræddi við Valgerði, formann Samtaka Grænkera á Íslandi um áramótaheiti og áhrif Veganúar.
Bítið á Bylgjunni
Axel F. Friðriks leit við í Bítið og sagði frá Veganúar fyrir alla forvitna, henti út mýtum og skoraði á alla að skoða lífstílinn sinn.
Hvers vegan ekki?
Pistill á Vísi frá Valgerði Árnadóttur, formanni Samtaka grænkera, í tilefni af upphafi Veganúar.
Veganúar 101 í Grænkerinu
Axel Friðriks ræddi við Evu Kristjáns um Veganúar í heild en fóru líka yfir sína topp 5 lista á léttari nótum.
Morgunútvarp Rásar 2
Elín Sandra Skúladóttir ræddi um heilsufarslegan ávinning grænkerafæðis í Morgunútvarpi Rásar 2.
Mannlegi þátturinn á Rás 2
Valgerður Árnadóttir, formaður Samtaka grænkera, ræddi almennt um Veganúar 2022 í Mannlega þættinum á Rás 2.
Reykjavík síðdegis á Bylgjunni
Axel F. Friðriks ræddi m.a. um fjárhagslegan og siðferðislegan ávinning vegan lífsstíls í Reykjavík Síðdegis.
Kvennaklefinn á Hringbraut
Valgerður og Björk ræddu Veganúar í Kvennaklefanum, ásamt Ingibjörgu, sem er að taka þátt í Veganúar í fyrsta skipti.
Viltu vera með í Veganúar í ár?
Veganúar er stærsta vegan-hreyfing í heiminum í dag og hvetur fólk til að prófa að vera vegan í janúarmánuði og helst auðvitað til frambúðar.
Veganúar 2024